|
Kennaranámskeið Fullfrísk Í janúar verður Fullfrisk ehf. með 3 helga námskeið fyrir þolfimikennara, einkaþjálfara og aðra sem sem sinna líkamsrækt hjá barnshafandi konum og nýorðnum mæðrum. Markmið námskeiðsins er að gera þessu fólki kleyft að þjálfa barnshafandi konur og nýorðnar mæður á öruggan og markvissan hátt, hvort sem er í hvers kyns hóptímum eða einkaþjálfun. Námskeiðið skiptist í bóklegan og verklegan hluta. Bóklegur hluti
Verklegur hluti
Kennarar námskeiðs eru Guðrún Lovísa Ólafsdóttir og Dagmar Heiða Reynisdóttir en þær eru báðar hjúkrunarfræðingar, einkaþjálfarar og þolfimikennarar og unnu lokaverkefni sitt Líkamsrækt á meðgöngu við hjúkrunarfræðideild H.Í. árið 2004 undir leiðsögn Helgu Gottfreðsdóttur lektors í ljósmóðurfræðum. Þær eiga og reka Fullfrisk ehf og hafa kennt meðgöngu og mömmuleikfimi samfellt í tæp þrjú ár við góðan orstír. Áhugasamir fylla út umsóknareyðublað sem hægt er að finna á heimasíðu Fullfrísk. Inntökuskilyrði er einhvers konar menntun og reynsla af íþróttakennslu s.s. íþróttafræði, einkaþjálfun, þolfimikennsla eða annað sambærilegt. Lágmarksaldur er 22 ára. Hámarksfjöldi á námskeiði er 15 manns og valið verður úr umsóknum. Innifalið í námskeiði er mappa með öllu kennsluefni og lesefni. Verð 50.000 kr. Fullfrísk leitar af kennurum til þess að kenna á námskeiðum Fullfrísk (bæði á höfuðborgarsvæðinu svo og á landsbyggðinni) og verðum við með augun opin á kennaranámskeiðinu.
|

Þjálfaranámskeið


