| Línuskautaferð |
|
Mánudagskvöldið 10. maí hittumst við fyrir framan Árbæjarlaug og tókum stóran og góðan hring í Elliðárdalnum á línuskautum.
Veður var frábært, sól og nokkuð hlýtt og svitnuðu allir vel í brekkunum. Þetta verður án efa endurtekið sem allra fyrst enda skemmtu sér allir mjög vel. |




