www.fullfrisk.is
Home Fréttir Fjallganga - Akrafjall
Fjallganga - Akrafjall
Næsta sunnudag ætlum við að ganga á Akrafjall.

Þetta er reisulegt fjall og munum við ganga allan hringinn og fara á hæstu tindana tvo Geirmundatind og Háatind.

Þetta er miðlungserfið ganga upp – fyrst á Geirmundartind – en svo nokkuð löng ganga á milli tindanna en er lítið er um hækkanir – og í lokin miðlungs erfið ganga niður.  
Áætlaður göngutími í kringum 4-5 tímar.

Hittumst niðri í Sporthúsi kl. 12.30.  
Einnig hægt að hitta á okkur upp í Mosó og slást í för með okkur og sameinast í bíla áður en farið er í göngin.

Veðurspá góð.  12°C, 2 m/sek og þurrt.

Þeir sem ætla með verða að senda mér línu eða skrá sig á Facebook síðu Fullfrisk.