| Um Fullfrísk |
Dagmar Heiða Reynisdóttir og Guðrún Lovísa Ólafsdóttir útskrifuðust úr hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands árið 2004 og skrifuðu þá BS-ritgerðina “Líkamsrækt á meðgöngu”. Út frá því spratt sú hugmynd fara af stað með meðgönguleikfimi. Þær byrjuðu að kenna meðgönguleikfimina í janúar 2007 í húsnæði Hreyfingar en fluttu svo í húsnæði Bootcamp í maí 2007. Í upphafi var aðeins boðið upp á eitt námskeið í meðgönguleikfimi en fljótlega kom í ljós að eftirspurnin var mikil og var þá bætt við öðru námskeiði. Einnig kom í ljós að verðandi mæður höfðu áhuga á að koma aftur eftir fæðingu til þess að koma sér í form og þá með börnin með sér. Til að byrja með mættu þær með börnin áfram í meðgöngutímana en fyrsta mömmunámskeið var svo sett á fót þann 22. oktober 2007. Meðgöngunámskeiðin og mömmunámskeiðin eru að mestu leiti byggð upp eins því eftir að konur eru búnar að eiga gilda sömu atriði og á meðan þær eru þungaðar. Það tekur líkamann tíma að jafna sig eftir fæðinguna. |

Um Fullfrísk



